Það er rúm 3 og hálft ár síðan að ég flutti frá Íslandi...
Á þessum tíma hef ég upplifað alveg gríðarlega mikið, bæði góðar minningar og slæmar...
Hérna eru nokkrar (ekki er stuðst við neina röðun hér fyrir neðan):
hitti Isabel
stofnaði F.Í.B.L.
kynnst dansheiminum
Eignast marga góða vini
Séð nýja menningarheima
Eytt jólum við Genfarvatn
upplifað svissneska fjallafegurð
upplifað sorgina að missa góðan vin
farið á bestu tónleika sem ég hef séð
borðað fondu í svissneskum fjallakofa
Búið í Sviss, Austurríki og Þýskalandi
farið í göngutúr í yfir 3500 metra hæð
farið á skíði í Frakklandi, Austurríki og Sviss
labbað mörgu sinnum til Frakkalands og Þýskalands
upplifað stemminguna að vera á íshokkíleik með yfir 16.000 áhorfendum
átt margar skemmtilega rökræður um allt milli himins og jarðar (þó aðallega pólitík)
og óteljandi önnur atriði...
En það er kannski kominn tími á að taka smá pásu....
Ég er nefnilega að flytja heim núna á laugardaginn (þann 4 ágúst) og mun líklegast dvelja á Íslandi í ca 1-2 ár. Ástæðan er sú að mér var boðin vinna hjá JK Fjárfestingum og mun ég vinna að því að gera það að því stórveldi sem þá á skilið að vera... Gleymið Baug Group, FL Group, og svoleiðis Group-bjánum.. Núna er það JK sem skiptir máli!
Nánari upplýsingar seinna